F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Ölduselsskóli – Gluggaskipti og endurbætur á þökum 2017. Útboð nr. 13880.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá mánudeginum 6. mars 2017 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nauðsynlegt er að nota Internet Explorer.
Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella
„New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:30 þriðjudaginn 21. mars 2017.
Verkið felst í:
Verk þetta nær til viðgerða og endurbóta á þaki og gluggum á suðurhlið Ölduselsskóla, þ.e. 2. áfanga skólans. Verkið felst í að skipta um glugga í heilu lagi, þ.e. karma, opnanleg fög og gler. Jafnframt er um að ræða háþrýsitþvott og endurmálun þaks.
Helstu magntölur eru:
Verkþáttur Ein. Magn
Endurnýjun glugga stk 26
Málun glugga m 440
Háþrýstiþvottur á þaki m2 1005
Endurmálun á þaki m2 1005
Verklok eru 18. ágúst 2017.