Home Fréttir Í fréttum Kaupir lóð undir bílastæði á 15 milljónir

Kaupir lóð undir bílastæði á 15 milljónir

432
0
Mynd: Skjáskot - RÚV
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að selja bandaríska sendiráðinu 274 fermetra lóð undir bílastæði við Engjateig 7a fyrir 15 milljónir. Miklar framkvæmdir eru á lóðinni þar sem verið er að breyta gömlu höfuðstöðvum ÍSTAKS í sendiráð en kostnaðurinn við þær nemur fjórum milljörðum.

Í bréfi skrifstofu eigna og atvinnuþróunar – sem lagt var fram á fundi borgarráðs á fimmtudag – kemur fram að vegna ýmissa öryggisráðstafana og uppsetningu á öryggisgrindverki hafi nokkur bílastæði fallið niður á lóðinni og því hafi skapast þörf fyrir aukabílastæði sem nýst gætu sendiráðinu.

<>

Samkvæmt uppdrætti að deiliskipulagi lóðarinnar er gert ráð fyrir að reisa þriggja metra háa öryggisgirðingu við sendiráðið og þar á einnig að setja upp 18 metra háa fánastöng.

Bandaríska sendiráðið hefur verið á Laufásvegi síðan á fimmta áratug síðustu aldar en festi kaup á húsinu á Engjateigi fyrir tveimur árum. Gert er ráð fyrir að breytingarnar á húsnæðinu kosti um fjóra milljarða en húsið þarf að uppfylla ákveðnar öryggiskröfur sem sendiráð gera.

Heimild: Ruv.is