10.2.2017
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vegheflun og/eða endurmótun vega á Suðurlandi.
Þjónustustöðvar verkkaupa eru í Hafnarfirði, á Selfossi og í Vík í Mýrdal.
Helstu magntölur á ári eru :
- Svæði 1 (Vík): 750 km
- Svæði 2 (Selfoss): 750 km
- Svæði 3 (Hafnarfjörður): 300 km
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með 13. febrúar 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. febrúar 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.