Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð mislægra vegamóta á mótum Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar auk allra vega og stígagerðar sem nauðsynleg er til að ljúka gerð vegaframkvæmdanna endanlega. Til framkvæmdanna telst einnig breytingar á Krýsuvíkurvegi, gerð tengivegar að Suðurbraut og tengivegar að Selhellu. Einnig er innifalin gerð göngu- og hjólastígs meðfram Suðurbrautartengingu og hraðatakmarkandi aðgerðir á Suðurbraut. Þá er gerð hljóðmana við Reykjanesbraut og í Hellnahverfi í Hafnarfirði hluti verksins. Einnig eru innifaldar breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja sem og nýlagnir og landmótun auk annarra þátta sem nauðsynlegir eru til að ljúka verkinu.
Helstu magntölur eru:
- Rif malbiks og gangstétta 14.000 m2
- Bergskeringar 53.000 m3
- Fyllingar í vegagerð 9.000 m3
- Jarðvegsfyllingar í hljóðvarnir 60.000 m3
- Fláafleygar 2.000 m3
- Lagnaskurðir 3.600 m
- Ofanvatnsræsi 1.000 m
- Brunnar 13 stk.
- Styrktarlag 8.000 m3
- Burðarlag 4.000 m3
- Malbik 52.000 m2
- Gangstígar 2.000 m2
- Kantsteinar 2.200 m
- Vegrið 180 m
- Götulýsing, skurðgröftur og strengur 3.800 m
- Ljósastaurar 80 stk.
- Mótafletir 2.000 m2
- Járnalögn, slakbending 91.000 kg
- Steypa 760 m3
Verkinu skal vera að fullu lokið 1. nóvember 2017.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli í móttöku Vegagerðarinnar Borgartúni 7 í Reykjavík frá mánudeginum 6. febrúar 2017. Verð útboðsgagna er kr. 2.000.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. febrúar 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.