F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Austurbæjarskóli, endurnýjun á þaki 2017. Útboð nr. 13854.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 8:30 miðvikudaginn 1. febrúar 2017 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nauðsynlegt er að nota Internet Explorer.
Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella „New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30 þriðjudaginn 21. febrúar 2017.
Verkið felst í:
Verk þetta nær til viðgerða og endurbóta á þaki Austurbæjarskóla, þ.e. norðurálmu skólans. Verksvæði afmarkast við suðurþekju norðurálmu. Verkið felst í endurnýjun á koparklæðningu, borðaklæðningu og þakpappa, sem og þakgluggum, þaktúðum, þakháf, snjógrindum, þakrennum og þakniðurföllum. Jafnframt er um að ræða endurbætur á útloftun.
Helstu magntölur eru:
| Verkþáttur: | Ein.: | Suðurþekja: | 
| Rif og förgun | m2 | 175 | 
| Endurnýjun borðaklæðningar | m2 | 20 | 
| Þakpappi | m2 | 175 | 
| Asfaltdúkur | m2 | 175 | 
| Læst koparklæðning | m2 | 175 | 
| Þakrennur | m | 25 | 
| Þakniðurföll | m | 20 | 
| Þakgluggar | stk | 7 | 
| Þakháfur | stk | 1 | 
| Snjógrind | m | 25 | 
Verktími er 12. júní til 18. ágúst 2017.
 
		 
	





