ÚTBOÐ
Húsfélagið að Skólavörðustíg 16, 101 Reykjavík óskar eftir tilboðum í verkið :
UTANHÚSSVIÐHALD – MÚRVIÐGERÐIR OG MÁLING
Um er að ræða háþrýstiþvott, múr- og sprunguviðgerðir ásamt málun útveggja og glugga á húsinu.
Helstu magntölur eru :
Háþrýstiþvottur, múr- og sprunguviðgerðir 300 m2
Málun og grunnun steinveggja 300 m2
Málun gluggakarma 350 Lm
Bárujárnsklæðning 75 m2
Glerskipti 60 m2
Útboðsgögn er hægt að fá send rafrænt með því að senda tölvupóst á netfangið magnus@byggingarad.is .
Tilboðum skal skila á skrifstofu Eignareksturs ehf , Suðurlandsbraut 48, 2 hæð 108 Reykjavík og skulu hafa borist eigi síðar en föstudaginn 10. febrúar 2017, kl 13:00 þar sem þau verða opnuð.