Ekkert fjármagn er til framkvæmda við gerð nýs flughlaðs á Akureyrarflugvelli í fjárlögum ríkisins fyrir árið 2017. Í samgönguáætlun í haust var gert ráð fyrir um 160 milljónum í verkefnið í viðbót við þær 50 milljónir sem veittar voru í efnaflutninga fyrir um ári síðan. Það fjármagn náðist hins vegar ekki í gegn í fjárlögum.
Fyllingarvinna hófst í nýtt flughlað fyrir um ári síðan en allt fé í framkvæmdina er uppurið. Nóg er þó af efni til að keyra í flughlaðið að sögn Valgeirs Bergmanns Magnússonar, framkvæmdastjóra Vaðlaheiðarganga hf. Áætlað er að það þurfi 175 þúsund rúmmetra af efni í flughlaðið. Illa hefur gengið að tryggja allt það fjármagn sem til þarf til að ljúka framkvæmdinni en Vaðlaheiðargöng hf. hafa brugðið á það ráð að lána ríkinu fyrir kostnaði á efnaflutningi.
Ekkert hefur verið keyrt af efni í hlaðið undanfarna mánuði en verktakinn áætlar að hefja fljótlega efnaflutninga og á rúmlega 20 þúsund rúmmetrum af efni úr göngunum. Valgeir segir ekki útilokað að Vaðlaheiðargöng láni enn frekar fyrir framkvæmdinni.
Heimild: Vikudagur.is