ONRS-2016-21 Háþrýstiþvottur á kæliturnum og öðrum búnaði
Orka náttúrunnar ohf. óskar eftir tilboðum í:
Háþrýstiþvott á kæliturnum og öðrum búnaði
Um er að ræða hreinsun á einum kæliturni við Nesjavallavirkjun og sjö kæliturnum við Hellisheiðarvirkjun ásamt öðrum tilfallandi hreinsunarverkefnum.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Nánar lýst í útboðsgögnum „ONRS-2016-21 Háþrýstiþvottur á kæliturnum og öðrum búnaði“
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með fimmtudeginum 05.02.2017 á vefsíðu OR https://www.or.is/fjarmal/utbod#page-7016
Tilboð verða opnuð hjá Orku náttúrunnar ohf. Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 23.02.2017 kl. 11:00.