Home Fréttir Í fréttum Munck Gruppen kaupir öll hlutabréf í LNS Saga

Munck Gruppen kaupir öll hlutabréf í LNS Saga

188
0
MYND/LNS SAGA

Danska verktakafyrirtækið Munck Gruppen hefur keypt öll hlutabréf í LNS Saga. Fyritækið hefur til þessa að meginstofni verið í eigu Norska fyritækisins LNS.

<>

Í tilkynningu frá LNS Saga segir að fyrirtækið velti á árinu 2016 um 800 milljónum danskra króna, um ríflega 14 milljörðum íslenskra, og hafi um fjögur hundruð starfsmenn. „Fyrirtækið býr yfir mikilli reynslu af byggingu hafna, sjóvarnargarða, atvinnuhúsnæðis, flugstöðva, gangna, vega og virkjana. Með kaupunum styrkir Munck sig verulega á þessum sviðum,“ segir í tilkynningunni.

Í tilkynningu frá Munck er haft eftir Hans Christian Munck, forstjóra Munck Gruppen, að fyrirtækið hafi um langa hríð starfað af krafti í Skandinavíu og með kaupunum á LNS Saga geti það við styrkt stöðu þess á Íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi.

„Með kaupunum við okkur tækifæri til samlegðaráhrifa og öðlumst hæfni til að takast á við enn flóknari verkefni. LNS Saga er ungt fyrirtæki með áhugasömum starfsmönnum og reyndum stjórnendum og við höfum væntingar til þróunar mála á Íslandi og á öðrum Norðurlöndum.

Að sjálfsögðu er menningarmunur milli Íslands og Danmerkur, en við hlökkum til að koma samþættingu fyrirtækjanna á fullan skrið. Ég er þess fullviss að okkur muni takast að finna leiðir fyrir fyrirtækin til að bæta hvert annað upp. Þrátt fyrir hinn hraða vöxt LNS Saga, hefur fyrirtækinu tekist að viðhalda mikilli áherslu á öryggi og samtakamátt starfsmanna, sem er mikið forgangsmál hjá Munck Gruppen. Fyrirtækið hefur sterkan liðsanda og ég sé fram á spennandi og gefandi samstarf.” Segir Hans Christian Munck.

Munck Gruppen hafði fyrir kaupin á LNS árlega veltu upp á 1,6 milljarð DKK (26,3 milljarðar ÍSK) og um það bil 1.100 stöðugildi. Eftir kaupin verða starfsmenn Munck um 1.500 talsins.

Heimild: Visir.is