Seltjarnarnesbær og Reykjavíkurborg ætla að standa saman að stækkun íþróttaaðstöðu Gróttu á Seltjarnarnesi til að bæta aðstöðu til fimleikaiðkunar.
Hugmyndin er að gera viðbyggingu við núverandi íþróttaaðstöðu, en gert er ráð fyrir að aðstaðan verði tilbúin eftir tvö ár. Reykjavíkurborg mun greiða leigu á aðstöðu fyrir iðkendur sem búsettir eru í Reykjavík. Gildistími samningsins er 20 ár frá því að aðstaðan verður tekin í notkun. Að samningstíma liðnum framlengist samningurinn um fimm ár í senn.
Upphaf viðræðna sveitarfélaganna nær til samþykktar á fundi sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu árið 2010, en þá stefndu sveitarstjórarnir á aukið samstarf í íþróttamálum á höfuðborgarsvæðinu.
Það voru bæjarstjóri Seltjarnarness, Ásgerður Halldórsdóttir og borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson sem undirrituðu samkomulagið í fimleikasal Gróttu þriðjudaginn 13. desember. Við sama tækifæri undirrituðu Elín Smáradóttir formaður Gróttu og Gylfi Dalmann formaður KR samkomulag sem miðar að því að efla enn frekar samstarf og skipulagningu íþróttastarfs fyrir börn og unglinga og afreksfólk innan sinna raða.
Heimild: Seltjarnarnes.is