Reiknað er með því að mörg tilboð berist í lóð fyrir íbúðarhúsnæði að Hraunbæ 103A sem er nú auglýst á lóðavef Reykjavíkurborgar. Skipulag gerir ráð fyrir að á lóðinni rísi íbúðir fyrir fólk sextíu ára eða eldra.
Samkvæmt deiluskipulagstillögu á húsið að vera níu hæðir.
Á vef Reykjavíkurborgar kemur fram að skrifstofa eigna og atvinnuþróunar, sem annast sölu byggingarréttar í Reykjavík, hefur í gegnum tíðina fengið fyrirspurnir um lóðina og því er búist við því að allmörg tilboð berist fyrir tilskilinn frest sem rennur út 14. desember.
Heimilt er að byggja á lóðinni fimmtíu íbúðir með 20% skekkjumörkum sem þýðir að byggja má allt að sextíu íbúðir. Félagsbústaðir hf. hafa kauprétt á sex íbúðum í húsinu.
Gert er ráð fyrir að lóðin verði tilbúin til afhendingar um mitt næsta ár. Lóðin er 3.550 fermetrar með nýtingarhlutfallinu 1,7 sem þýðir að heimilt byggingarmagn á lóðinni er um 6.000 fermetrar, auk bílakjallara.
Einungis er hægt að bjóða í allt byggingarmagn á lóðinni.
Heimild: Mbl.is