Vestmannaeyjar – Gjábakki uppsetning fendera 2026
Hafnarstjórn Vestmannaeyja óskar eftir tilboðum í verkið „Vestmannaeyjar – Gjábakki, uppsetning fendera 2026“.
Framkvæmdin felst í uppsetningu á samtals 39 fenderum við Gjábakkakant í Vestmannaeyjahöfn.
Fenderarnir eru ætlaðir til að verja hafnarmannvirki og skip fyrir álagi við viðlegu.
Helstu verkþættir eru:
– Uppsetning 21 lóðrétts DD-fenders.
– Uppsetning 17 láréttra DD-fendera.
– Uppsetning eins lárétts V-fenders.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. mars 2027.
Útboðsgögn eru aðgengileg án endurgjalds í rafræna útboðskerfinu TendSign frá 24. nóvember 2026.
Tilboðum skal skila rafrænt fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 8. desember 2026.
Ekki verður sérstakur opnunarfundur. Að loknum tilboðsfresti fá bjóðendur upplýsingar um nöfn þátttakenda, heildarfjárhæðir tilboða og hvort frávikstilboð hafi borist.
Heimild: Vegagerðin
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Aðstaða fyrir 140 m ekjufraktskip í Vestmannaeyjahöfn
Efni: Vestmannaeyjar – Gjábakki uppsetning fendera 2026












