Home Fréttir Í fréttum 04.12.2026 Garðabær býður út umfangsmikla gatnagerð og lagnir í Hnoðraholti

04.12.2026 Garðabær býður út umfangsmikla gatnagerð og lagnir í Hnoðraholti

29
0
Garðabær býður út umfangsmikla gatnagerð og lagnir í Hnoðraholti
Mynd: Landslag ehf

Garðabær býður út umfangsmikla gatnagerð og lagnir í Hnoðraholti

Garðabær hefur auglýst eftir tilboðum í gatnagerð og lagnavinnu vegna uppbyggingar nýs íbúðahverfis í Hnoðraholti suður – Háholti.

Um er að ræða umfangsmikla innviðauppbyggingu þar sem heildarlengd nýrra gatna er um 1.500 metrar.

Bæjarráð Garðabæjar hefur samþykkt fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og falið umhverfissviði sveitarfélagsins framkvæmd útboðsins.

Umfangsmiklar jarðvinnu- og veituframkvæmdir

Framkvæmdin tekur til jarðvinnu vegna gatna, gangstétta og bílastæða, auk uppbyggingar fráveitu- og frárennsliskerfa.

Samhliða gatnagerðinni verða lagðar veitulagnir fyrir heitt og kalt vatn, rafmagn og fjarskipti auk þess sem komið verður upp götulýsingu.

Helstu magntölur verksins eru:

Verkþáttur Magn
Gröftur 33.000 m³
Klapparskering 1.000 m³
Fyllingar og burðarlög 46.000 m³
Malbikun 8.600 m²
Fráveitulagnir 3.300 m
Hitaveitulagnir 3.000 m
Vatnslagnir 1.300 m
Rafstrengir 3.600 m
Háspennustrengur 200 m
Ljósastólpar 70 stk.
Ídráttarrör rafmagns 350 m
Fjölpípurör 3.100 m
Blástursrör 525 m
Gröftur fyrir lögnum 10.000 m³
Losun á klöpp í skurðum 4.500 m³

Framkvæmdirnar eru liður í uppbyggingu nýs íbúðahverfis í Hnoðraholti og áframhaldandi þróun byggðar í Vífilsstaðalandi.

Verklok í september 2027

Verktaki skal hafa lokið framkvæmdum fyrir 1. september 2027.

Útboðsgögn eru aðgengileg í rafrænu útboðskerfi EFLU og skal tilboðum skilað í gegnum sama kerfi.

Útboðsupplýsingar:

  • Verkkaupi: Garðabær.
  • Útboðsnúmer: 2603214.
  • Heiti útboðs: Hnoðraholt suður – Háholt – Gatnagerð og lagnir.
  • Útboðsgögn afhent: 20. nóvember 2026.
  • Opnun tilboða samkvæmt skráningu á Útboðsvef: 4. desember 2026 kl. 14:00.
  • Verklok: Fyrir 1. september 2027.

Útboðsgögn: https://efla.ajoursystem.net/tender

Heimild: Garðabær

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Garðabær tekur tilboðum hæstbjóðenda í Hnoðraholti suður – 454 tilboð bárust

Efni: Garðabær býður út umfangsmikla gatnagerð og lagnir í Hnoðraholti