Hús kynslóðanna á að hýsa menntaskólanemendur og íbúa yfir 55 ára aldri
Nemendagarðar Menntaskóla Borgarfjarðar eru komnir í nýtt húsnæði í Borgarnesi. Á efri hæðum hússins verða íbúðir fyrir 55 ára og eldri.
Fyrstu íbúarnir á nýjum nemendagörðum í Borgarnesi fluttu inn í haust. Þeir eru í Húsi kynslóðanna – sem heitir svo því á efri hæðum hússins eru íbúðir fyrir 55 ára og eldri.
Heiðdís María Fannarsdóttir er frá Akranesi. Hún hóf nám við Menntaskóla Borgarfjarðar í haust. „Það skiptir mjög miklu máli. Ég þekki krakka sem taka strætó og vilja bara strax koma á heimavistina,“ segir hún.
Viktor Bjarni Árnason ólst upp í Dölunum. Hann segir kost á heimavist muna miklu fyrir börn í dreifbýli: „Bæði kostnaðarlega og upp á tíma að gera, að þurfa ekki að eyða miklum tíma í að sitja í bíl.“
Bragi Þór Svavarsson, skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar, fagnar því að nemendur skólans komi víða að. „Þetta eflir enn þá frekar gott félagslíf í Menntaskóla Borgarfjarðar og auðgar samfélagið í Borgarnesi.“
Heimild: Ruv.is
Sjá eldri frétt á BYGGINAR.IS: Mögulegt samstarf Brákarhlíðar og MB um nýbyggingu í Borgarnesi
Efni: Hús kynslóðanna á að hýsa menntaskólanemendur og íbúa yfir 55 ára aldri












