Óseldar íbúðir teknar upp í skuldir?
Arion og Landsbankinn kannast ekki við slíkar ráðstafnir en Íslandsbanki segist leita lausna í samráði við viðskiptavini.
Viðskiptablaðið hefur að undanförnu fjallað ítarlega um nýbyggingaverkefni á höfuðborgarsvæðinu. Í kjölfarið bárust blaðinu ábendingar um að lánveitendur hafi í einhverjum tilfellum krafið uppbyggingaraðila um að þeir afsali íbúðum sem greiðslu inn á fjármögnunarlán.
Þá hafi lánveitendur krafist þess að íbúðirnar séu teknar upp í lán á verði sem er undir ásettu söluverði.
Viðskiptablaðið sendi því fyrirspurn á stóru viðskiptabankana þrjá, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankann.
Í fyrirspurninni var spurt hvort að bankarnir hafi farið fram á ráðstafanir á borð við það sem að ofan var lýst. Væri svarið já fylgdu nokkrar ítarlegri spurningar um fjölda íbúða, heildarverðmæti þeirra, hvort krafist hefði verið afsláttar af uppsettu kaupverði og hvort gert væri ráð fyrir frekari yfirtökum á nýjum íbúðum á næstunni.
Svör Arion banka og Landsbankans voru afdráttarlaus. Arion banki kannast ekki við slíkar ráðstafanir og Landsbankinn kveðst ekki viðhafa það verklag við uppbyggingaraðila sem lýst hefur verið að ofan.
Telja ekki verulegar líkur á tapi vegna fasteignaþróunarverkefna
Svar Íslandsbanka er aftur á móti ekki jafn afdráttarlaust. Þar kemur fram að bankinn tjái sig ekki um málefni einstakra viðskiptavina og geti því ekki veitt upplýsingar um einstök mál, fjölda tilvika, fjölda eigna eða kjör í einstökum viðskiptum.
„Almennt leitar bankinn lausna í samráði við viðskiptavini þegar forsendur verkefna breytast. Þegar bankinn tekur við eignum er markmiðið að koma þeim aftur í umferð með hliðsjón af aðstæðum á fasteignamarkaði.
Bankinn hefur áður bent á að hátt vaxtastig og hæg sala nýbygginga hafi skapað þrýsting á fasteignaþróunarverkefni. Staða viðskiptavina bankans er þó almennt talin góð og veðsetning hófleg. Að svo stöddu telur bankinn því ekki verulegar líkur á tapi vegna fasteignaþróunarverkefna,“ segir í svari bankans.
Heimild: Vb.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Óseldar íbúðir fyrir milljarðatugi
Efni: Óseldar íbúðir teknar upp í skuldir?












