
Iðnaðarmenn ósáttir við verklag Sorpu
Megn óánægja er meðal iðnaðarmanna með fyrirkomulag móttöku á úrgangi frá starfsemi þeirra. Gagnrýnt er að misjafnt virðist vera hversu mikið starfsmenn Sorpu telja að iðnaðarmenn komi með hverju sinni og eigi að greiða – og að ódýrara sé að fara upp í Álfsnes en að fara á endurvinnslustöðvar.
Þetta kemur fram í umræðum í Facebook-hópnum Iðnaðarmenn Íslands. „Allt í einu er starfsmaðurinn í hliðinu orðinn sérfræðingur í rúmfræði og rúmmálsútreikningum og á að meta með augunum hvort ég eigi að borga 10.000 kr. eða 70.000 kr. fyrir að losa mig við ruslið,“ segir málshefjandi og taka margir undir ábendingar hans um að ótrúlegt sé að verðlagning geti byggst á svo huglægu mati.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 31.03.2025 SORPA – Endurvinnslustöð, Lambhagavegur 14. EES
Efni: Iðnaðarmenn ósáttir við verklag Sorpu











