Home Fréttir Í fréttum World Class kaupir Strand­götu 14 á 685 milljónir

World Class kaupir Strand­götu 14 á 685 milljónir

95
0
World Class kaupir Strand­götu 14 á 685 milljónir
World Class keypti rekstur heilsuræktarstöðvar Átaks á Strandgötu 14 á Akureyri í lok árs 2017. Ljósmynd: Aðsend mynd

World Class kaupir Strand­götu 14 á 685 milljónir

Seljandinn er Heimar fasteignafélag.

Systurfélag World Class, Í toppformi ehf., hefur fest kaup á fasteigninni sem hýsir líkamsræktarstöð World Class að Strandgötu 14 á Akureyri. Kaupverðið nam 685 milljónum króna.

Strandgata 14 er 1.480 fermetrar að stærð. Skráð byggingarár eignarinnar er 1994. Fasteignamat 2026 nam 346 milljónum króna.

Í toppformi ehf. varð til þegar fasteignum Lauga ehf., rekstraraðila World Class á Íslandi, var skipt út úr félaginu árið 2020.

Eignir Í toppformi ehf., sem heldur á fasteignum World Class, námu 5,7 milljörðum króna í árslok 2025. Verðmætasta eign félagsins er Sundlaugavegur 30a sem hýsir líkamsræktarstöð World Class í Laugum.

World Class opnaði sína fyrstu stöð utan Reykjavíkur í Slysavarnafélagshúsinu við Strandgötu í október 1997. Umrædd stöð var seld árið 2006. Í lok árs 2017 var greint frá því að World Class hefði festi kaup á heilsuræktarstöðvum Átaks á Akureyri, annars vegar við Skólastíg og hins vegar við Strandgötu.

Björn Leifsson, forstjóri og einn aðaleiganda World Class.
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir eiga 36,6% hvort um sig í Laugum ehf. og Í toppformi ehf. Sigurður Leifsson á 26,8% hlut í félögunum.

Heimild: Vb.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Stórhuga verkefni World Class á Fitjum

Efni: World Class kaupir Strand­götu 14 á 685 milljónir