Fjórir milljarðar í lóð og jarðvinnu
Rúmir fjórir milljarðar króna af áætluðum kostnaði við fyrsta áfanga nýs fangelsis á Stóra-Hrauni fara í jarðvinnu, lóð og mannvirki á lóð.
Áætlaður kostnaður við fyrsta áfanga fangelsisins á Stóra-Hrauni í Árborg nemur tæpum 17,8 milljörðum króna. Þar af eru 3,03 milljarðar ætlaðir í lóð og mannvirki á lóð og rúmir 1,1 milljarður í jarðvinnu.
Samanlagt nemur kostnaður þessara liða tæpum 4,15 milljörðum króna, eða um 23% af heildarkostnaði áfangans. Þetta kemur fram í svörum FSRE við fyrirspurn Viðskiptablaðsins um forsendur kostnaðaráætlunarinnar.
Stærsti einstaki kostnaðarliðurinn er byggingarnar sjálfar en áætlað er að þær kosti tæpa 12 milljarða króna. Þá eru 1,64 milljarðar ætlaðir í frumathugun og áætlanagerð.
Heimild: Vb.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Fyrsta skóflustungan að Stóra-Hrauni
Efni: Fjórir milljarðar í lóð og jarðvinnu












