Home Fréttir Í fréttum Silfrastaðakirkja snýr aftur

Silfrastaðakirkja snýr aftur

39
0
Silfrastaðakirkja snýr aftur
Silfrastaðakirkja var sett á flutningabíl á Sauðárkróki í vikunni. Mynd: mbl.is/Páll Friðriksson

Silfrastaðakirkja snýr aftur

Silfrastaðakirkja var flutt að nýju á sinn stað í Blönduhlíð í Skagafirði í vikunni. Hún var tekin af grunni í október 2021 og flutt út á Sauðárkrók þar sem unnið var að endurbótum.

Sigríður Gunnarsdóttir, prófastur Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmis, segir flutninginn hafa gengið eins og í sögu. Hún segir kirkjuna ókláraða að innan og turni hennar og gluggum eigi eftir að koma fyrir. Þá eigi eftir að mála hana að utan. Sigríður bindur vonir við að kirkjustarf geti hafist í kirkjunni á næsta ári. „Það er voða gott að fá hana heim aftur. Það var svo tómlegt að hafa hana ekki á sínum stað,“ segir Sigríður í samtali við Morgunblaðið.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Silfrastaðakirkja á bílastæði á Sauðárkróki

Efni: Silfrastaðakirkja á bílastæði á Sauðárkróki