Home Fréttir Í fréttum Hluti hússins rifinn og grafið fyrir nýju

Hluti hússins rifinn og grafið fyrir nýju

51
0
Hluti hússins rifinn og grafið fyrir nýju
Stórvirkar vinnuvélar að störfum við uppgröft og niðurrif á lóðinni við Álfabakka 8, þar sem bíóið var. mbl.is/Karítas

Hluti hússins rifinn og grafið fyrir nýju

Vinna við niðurrif á húsi Sambíóanna við Álfabakka stendur yfir og er búið að rífa þak og allt innanstokks í húsinu. Jarðvegsvinna vegna stækkunar hússins er í fullum gangi, en húsið verður lengt um 53,5 metra og verður heildarlengd hússins 120 metrar. Húsið verður 10.000 fermetrar að stærð.

Fjarskiptafyrirtækið Nova flytur í húsnæðið þar sem bíóið hefur verið til húsa. Nú er unnið að endurskipulagningu hússins og annast fasteignafyrirtækið Eignabyggð verkið.

Í nýju byggingunni er gert ráð fyrir matvöruverslun á jarðhæð. Fyrirliggjandi hugmyndir gera ráð fyrir því að stærð hennar verði 1.000 fermetrar. Að sögn rekstraraðila er ekki rekstrargrundvöllur fyrir minni verslun en það á þessu svæði. Það helgist m.a. af fjarlægð í næsta íbúðahverfi.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Þakið komið af til­vonandi höfuð­stöðvum Nova

Efni: Hluti hússins rifinn og grafið fyrir nýju