Segir þróunina í byggingariðnaði áhyggjuefni
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir skýr merki um að verulega hafi hægt á umsvifum í byggingariðnaði. Háir vextir og hægari sala íbúða auki fjármagnskostnað og geti gengið hratt á eigið fé byggingarfyrirtækja.
Þetta kemur fram í ummælum Lilju Bjarkar í afkomutilkynningu Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins. Hún segir þróunina áhyggjuefni og bendir á að langvarandi samdráttur í uppbyggingu geti haft áhrif á framboð íbúða þegar eftirspurn taki við sér á ný.
Aukið framlag í virðisrýrnunarsjóð
„Þótt vanskil einstaklinga séu enn lítil sjáum við skýr merki um að verulega hafi hægt á umsvifum í byggingariðnaði. Háir vextir og hægari sala íbúða auka fjármagnskostnað og geta gengið hratt á eigið fé byggingarfyrirtækja,“ segir Lilja Björk.
Hún segir þessa þróun undirstrika mikilvægi þess að skapa aukinn stöðugleika í efnahagslífinu.
„Í uppgjöri bankans er aukið framlag í virðisrýrnunarsjóð til að mæta mögulegum vanefndum, sér í lagi í byggingariðnaði.“
Lilja Björk segir brýnt að ná tökum á verðbólgu svo vextir geti lækkað og svigrúm til fjárfestinga og vaxtar aukist. Í nýrri hagspá Greiningardeildar Landsbankans sé gert ráð fyrir hægum hagvexti á næstunni en að horfur fari smám saman batnandi og verðbólga hjaðni á nýju ári.
Hækkun bankaskatts auki fjármögnunarkostnað
Lilja Björk fjallar einnig um fyrirhugaða hækkun bankaskatts. Hún bendir á að Landsbankinn hafi lækkað útlánsvexti þegar skatturinn var lækkaður í apríl 2020.
Hún segir fyrirhugaða hækkun myndu hafa áhrif á fjármögnunarkostnað bankans og samkeppnisstöðu hans gagnvart öðrum lánveitendum, svo sem lífeyrissjóðum og erlendum bönkum.
„Kostnaðurinn af bankaskatti og vaxtalausri bindiskyldu samsvarar 0,65 prósentustigum í auknum fjármagnskostnaði fyrir hvert útlán en myndi hækka í 0,81 prósentustig ef áformin ganga eftir.“
Traustur rekstur í krefjandi umhverfi
Lilja Björk segir afkomu fyrstu níu mánaða ársins góða og endurspegla traustan og stöðugan rekstur í krefjandi efnahagsumhverfi. Hagnaður bankans eftir skatta nam 33,1 milljarði króna á tímabilinu.
Hún segir innlán hafa aukist umtalsvert á þriðja ársfjórðungi, þótt ekki sé gert ráð fyrir að aukningin verði hluti af langtímafjármögnun bankans. Jafnframt hafi útlán til fyrirtækja vaxið og viðskipti stórra fyrirtækja við bankann aukist.












