Home Fréttir Í fréttum Ráðinn fram­kvæmda­stjóri hjá M3 fast­eignaþróun

Ráðinn fram­kvæmda­stjóri hjá M3 fast­eignaþróun

127
0
Ráðinn fram­kvæmda­stjóri hjá M3 fast­eignaþróun
Kristján hefur yfir 15 ára reynslu af fasteignaþróun og byggingargeiranum. Ljósmynd: Birgir Ísleifur Gunnarsson

Ráðinn fram­kvæmda­stjóri hjá M3 fast­eignaþróun

M3 fasteignaþróun ehf. hefur ráðið Kristján Helgason sem framkvæmdastjóra byggingarverkefna. Kristján hefur yfir 15 ára reynslu af fasteignaþróun og hefur á undanförnum árum komið að þróun umfangsmikilla fasteignaverkefna.

Hann er með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja og býr yfir víðtækri reynslu af þróun, fjármögnun, hönnun og stýringu fasteignaverkefna. Kristján hefur unnið að verkefnum víða á höfuðborgarsvæðinu sem saman telja yfir 700 íbúðir og um 17.000 fermetra atvinnuhúsnæðis.

„Það er gríðarlegur fengur fyrir M3 að fá Kristján inn í verkefnin sem við erum að vinna að. Víðtæk reynsla hans af fjármögnun, hönnun og stýringu byggingarverkefna mun nýtast félaginu vel,“ segir Örn Kjartansson, eigandi M3 fasteignaþróunar.

Meðal verkefna sem Kristján hefur unnið að eru Eskiás í Garðabæ, þar sem uppbyggingu 291 íbúðar er nýlokið, Borgartún 24 og Sogavegur 73-81 í Reykjavík, auk sýningarhúss FlyOver Iceland við Fiskislóð.

„Það er mjög spennandi að koma að áframhaldandi uppbyggingu hjá M3. Verkefnin eru fjölbreytt og á ólíkum stigum, hvert með sín sérkenni og tækifæri. Ég hlakka til að vinna með verkefnateymum og samstarfsaðilum að því að skapa vandað húsnæði og góð búsetuskilyrði,“ segir Kristján Helgason.

Heimild: Vb.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Fjárfestar keyptu margar íbúðir í öðrum áfanga Heklureits

Efni: Ráðinn fram­kvæmda­stjóri hjá M3 fast­eignaþróun