Home Fréttir Í fréttum Sjóvinnu við Fossvogsbrú lokið – brúin tekur að rísa á næsta ári

Sjóvinnu við Fossvogsbrú lokið – brúin tekur að rísa á næsta ári

117
0
Sjóvinnu við Fossvogsbrú lokið – brúin tekur að rísa á næsta ári
Myndir: Betri samgöngur ohf.

Sjóvinnu við Fossvogsbrú lokið – brúin tekur að rísa á næsta ári

Mikilvægum áfanga er lokið við smíði Fossvogsbrúar, Öldu, en sjóvinnu við undirstöður og burðarása brúarinnar í Fossvogi er nú lokið á þessu ári. Framkvæmdir við brúna halda áfram á landi og í Póllandi, þar sem unnið er að framleiðslu brúarstöpla og stálvirkis. Stefnt er að því að brúin sjálf taki að rísa yfir Fossvog á árinu 2027.

Þetta kemur fram í nýrri stöðufærslu Borgarlínunnar og Betri samgangna um framkvæmdir við brúna.

Undanfarna mánuði hafa verktakar unnið að undirstöðum og burðarásum brúarinnar í Fossvogi. Með verklokum á sjó er stórum hluta fyrirhugaðrar sjóvinnu ársins 2026 lokið.

Brúarstöplar og stálvirki smíðuð í Póllandi

Á meðan hlé verður gert á framkvæmdum á sjó yfir vetrarmánuðina heldur brúarsmíðin áfram í Póllandi.

Þar er unnið að brúarstöplum og stálvirki brúarinnar sem verða flutt til Íslands á næsta ári og komið fyrir á undirstöðum í Fossvogi.

Samkvæmt verkáætlun er gert ráð fyrir að brúarstöplarnir verði fluttir til landsins vorið 2027, hífðir á sinn stað og steyptir fastir við undirstöðurnar.

Í kjölfarið verður stálvirki brúarinnar flutt til Íslands og komið fyrir á stöplunum.

Þá hefst vinna við brúargólf og yfirborðsfrágang.

Steypuvinna heldur áfram á landi

Þótt sjóvinnu sé lokið á þessu ári heldur vinna áfram á framkvæmdasvæðinu á landi.

Samkvæmt upplýsingum Borgarlínunnar er meðal annars unnið við steypu burðaráss númer sex á landfyllingunni Reykjavíkurmegin.

Ístak hf. og danska verktakafyrirtækið Per Aarsleff AS annast brúarsmíðina.

Fyrirtækin tóku við framkvæmdasvæðinu í janúar 2026 og hófu framkvæmdir við brúna í apríl.

Fossvogsbrú verður 270 metra löng

Fossvogsbrúin, sem hefur hlotið nafnið Alda, verður 270 metra löng og allt að 17 metra breið.

Hún mun tengja Kársnes í Kópavogi við Reykjavík og er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu.

Brúin verður ætluð Borgarlínuvögnum, strætisvögnum, gangandi og hjólandi vegfarendum. Þá verður hún einnig opin fyrir forgangsakstur lögreglu, sjúkraflutninga og slökkviliðs.

Hönnun brúarinnar er í höndum EFLU og BEAM Architects.

Framkvæmdasvæði Fossvogsbrúar. Skjáskot

Stefnt að verklokum í júní 2028

Samkvæmt verkáætlun verður árið 2027 helsta uppsetningarár brúarinnar þegar brúarstöplar og stálvirki verða hífð á sinn stað.

Árið 2028 verður síðan unnið við lokaáfanga, meðal annars uppsetningu handriða, vegriða, lýsingar og yfirborðsfrágang.

Stefnt er að því að fullbúin Fossvogsbrú verði afhent 16. júní 2028.

Heimild: Betri samgöngur ohf.

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Smíði Fossvogsbrúar að taka á sig mynd

Efni:  Sjóvinnu við Fossvogsbrú lokið – brúin tekur að rísa á næsta ári