Home Fréttir Í fréttum COWI Ísland tvöfaldaði hagnaðinn

COWI Ísland tvöfaldaði hagnaðinn

133
0
COWI Ísland tvöfaldaði hagnaðinn
Gunnar Sverrir Gunnarsson er framkvæmdastjóri COWI á Íslandi. Ljósmynd: Aðsend mynd

COWI Ísland tvöfaldaði hagnaðinn

Verkfræðiráðgjafarfyrirtækið hagnaðist 381 milljón króna á síðasta ári samanborið við 199 milljónir árið 2024.

Hagnaður verkfræðiráðgjafarfyrirtækisins COWI Ísland nam 381 milljón króna á síðasta ári samanborið við 199 milljónir árið 2024. Hagnaðurinn jókst því um 91% milli ára.

Rekstrartekjur COWI námu 6,8 milljörðum króna og jukust um 18% frá fyrra ári þegar þær voru 5,7 milljarðar. Rekstrarhagnaður jókst úr 67 milljónum króna í 406 milljónir. Laun og launatengd gjöld námu 4,3 milljörðum króna og hækkuðu um tæplega 9%. Meðalfjöldi stöðugilda var 230 og voru nánast óbreytt milli ára.

Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 252 milljónir króna, samanborið við jákvætt sjóðstreymi upp á 113 milljónir árið áður. Handbært fé dróst saman úr 1,1 milljarði króna í 833 milljónir. Eigið fé nam 1,8 milljörðum króna í árslok.

COWI Ísland er í eigu danska félagsins COWI International. Stjórn félagsins leggur til að greiddar verði 500 milljónir króna í arð til hluthafa á þessu ári. Í ársreikningi segir að aukin eftirspurn eftir þjónustu félagsins muni að öllum líkindum leiða til fjölgunar starfsmanna á árinu.

Heimild: Vb.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: COWI fær 148.5 m.kr. eftirlit með nýrri Þjórsárbrú

Efni: COWI Ísland tvöfaldaði hagnaðinn