Home Fréttir Í fréttum Grafa og grjót – INVIT fær 760 milljóna framkvæmd við Hlemmtorg

Grafa og grjót – INVIT fær 760 milljóna framkvæmd við Hlemmtorg

188
0
Grafa og grjót - INVIT fær 760 milljóna framkvæmd við Hlemmtorg
Tölvuteikning af fyrirhuguðu útliti norðursvæðis Hlemms. Mynd: Reykjavíkurborg

Grafa og grjót – INVIT fær 760 milljóna framkvæmd við Hlemmtorg

Reykjavíkurborg hefur samið við Gröfu og grjót – INVIT ehf. um framkvæmdir við endurgerð Hlemmtorgs og uppbyggingu Borgarlínu um Hlemm. Samningsfjárhæðin nemur 760,3 milljónum króna með virðisaukaskatti. Framkvæmdirnar fela meðal annars í sér gatnagerð, endurnýjun lagna og gerð nýrra torgsvæða. Stefnt er að verklokum fyrir árslok 2027.

Samningsfjárhæðin kemur fram í erindi umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar til innkaupa- og framkvæmdaráðs, dagsettu 18. september 2026.

Reykjavíkurborg tilkynnti 21. október að gengið hefði verið til samninga við verktakann og að framkvæmdir á svæðinu væru að hefjast.

Samið eftir að öllum tilboðum var hafnað

Verkið var upphaflega boðið út undir númerinu 16279, „Hlemmur norður og Borgarlína um Hlemm – gatnagerð, lagnir og yfirborðsfrágangur“.

Fjögur fyrirtæki skiluðu tilboðum sem voru opnuð 13. maí síðastliðinn.

Lægsta tilboðið kom frá Stjörnugörðum ehf. og hljóðaði upp á 599,9 milljónir króna. Grafa og grjót bauð 760,3 milljónir króna.

Samkvæmt gögnum Reykjavíkurborgar uppfyllti ekkert tilboð kröfur um hæfi og var þeim öllum hafnað.

Í kjölfarið var ákveðið að ganga til samningskaupa á grundvelli laga um opinber innkaup.

Umhverfis- og skipulagssvið ákvað síðan að semja við Gröfu og grjót – INVIT ehf. fyrir 760.334.961 krónu með virðisaukaskatti.

Fram kemur í gögnum borgarinnar að fyrirtækið hafi staðist fjárhagsskoðun og tæknilegt mat.

Gatnamót, götur og nýtt torgsvæði

Framkvæmdirnar ná meðal annars til endurgerðar gatnamóta Snorrabrautar og Hverfisgötu, ásamt götukafla Snorrabrautar frá Bríetartúni að Hverfisgötu.

Gerð verða ný torgsvæði norðan og sunnan Borgarlínuássins, meðal annars austur fyrir Hlemm mathöll.

Jafnframt verður leið Borgarlínu lögð um Hlemmtorg og komið fyrir nýrri stoppistöð fyrir almenningssamgöngur.

Veitulagnir endurnýjaðar

Samhliða framkvæmdunum verður ráðist í endurnýjun fráveitulagna, vatnsveitu- og hitaveitulagna, raflagna, fjarskiptalagna og umferðarljóslagna.

Verkið er sameiginlegt verkefni Reykjavíkurborgar, Betri samgangna og Veitna og hluti af fyrstu lotu Borgarlínu.

Að framkvæmdum loknum verður Hlemmtorg að mestu ætlað gangandi og hjólandi vegfarendum ásamt almenningssamgöngum og viðbragðsaðilum.

Heildarkostnaðaráætlun 1,19 milljarðar

Þegar borgarráð samþykkti að hefja innkaupaferlið í febrúar 2026 var heildarkostnaðaráætlun verkefnisins 1.190 milljónir króna.

Þar af var áætlaður hlutur Reykjavíkurborgar 500 milljónir króna.

Sú fjárhæð tekur til heildarverkefnisins en samningsfjárhæð Gröfu og grjóts vegna útboðs 16279 nemur 760,3 milljónum króna með virðisaukaskatti.

Framkvæmdir á Hlemmtorgi eru að hefjast og er stefnt að því að þessum áfanga verði lokið fyrir árslok 2027.

Heimild: Reykjavíkurborg

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 30.04.2026 Hlemmtorg norður og Borgarlína um Hlemm – Gatnagerð, lagnir og yfirborðsfrágangur

Efni: Grafa og grjót – INVIT fær 760 milljóna framkvæmd við Hlemmtorg