Home Fréttir Í fréttum Sérbýlislóðir í suðurhlíðum til sölu

Sérbýlislóðir í suðurhlíðum til sölu

68
0
Sérbýlislóðir í suðurhlíðum til sölu
Framkvæmdir við fyrsta áfanga í Hnoðraholti eru hafnar, en þar er gert ráð fyrir íbúðum í sérbýlishverfi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í ósnortna náttúru. mbl.is/Eyþór

Sérbýlislóðir í suðurhlíðum til sölu

Garðabær hefur auglýst til sölu byggingarrétt fyrir 26 einbýlishúsalóðir og 23 íbúðir í fjórum raðhúsalengjum í Hnoðraholti suður. Auk þess er leitað eftir tilboðum frá byggingarsamvinnufélögum í byggingarrétt fyrir samtals 18 íbúðir í fimm raðhúsalengjum.

Þetta er fyrsti áfangi að nýju sérbýlishúsahverfi sem mun telja um 300 hús í hlíðinni norður af golfvellinum við Vífilsstaði rétt hjá Miðgarði, íþróttamiðstöð Garðabæjar. Lóðirnar eru tilbúnar til úthlutunar og er tilboðsfrestur til 30. október.

Almar Guðmundsson bæjarstjóri segir að búið sé að deiliskipuleggja og nú séu lóðirnar tilbúnar í sölu og úthlutunin verði tvískipt. „Annars vegar er þetta almenn sala, sem eru 26 einbýlishúsalóðir til einstaklinga, og 23 raðhúsalóðir, sem eru með fjórum íbúðum í klasa sem gera má ráð fyrir að fari til verktaka.

Við óskum eftir tilboðum í þessar lóðir og þeir sem bjóða best hreppa hnossið. Hins vegar erum við með 18 raðhús í fjórum eða fimm klösum sem verður úthlutað til byggingarsamvinnufélaga.

Þetta verða raðhús á einni hæð og eru þau hugsuð fyrir fólk sem vill minnka við sig. Við vitum ekki fyrir fram hvaða félög munu fá lóðirnar en við höfum fundið fyrir áhuga á þessu fyrirkomulagi. Við erum spennt að sjá viðtökurnar sem þessar lóðir fá, því þetta eru lítil raðhús á tiltölulega litlum lóðum,“ segir Almar.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Garðabær auglýsir byggingarrétt fyrir 67 íbúðir í Hnoðraholti suður

Efni: Sérbýlislóðir í suðurhlíðum til sölu