
Þúsundir nýrra íbúða óseldar
Rúmlega 2.100 íbúðir eru taldar óseldar í 69 nýbyggingarverkefnum á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins sem nær til um 4.600 íbúða.
Alls eru 2.124 íbúðir taldar óseldar í 69 nýbyggingarverkefnum á höfuðborgarsvæðinu. Í verkefnunum og áföngunum sem úttektin nær til eru 4.597 íbúðir. Þar af eru 2.473 skráðar seldar, eða 53,8%. Óseldur er því tæplega helmingur íbúðanna.
Talningin byggist á fasteignaskrá og sölusíðum verkefnanna og miðast allar tölur við 19. október. Hafa ber í huga að hún gefur því ekki hárnákvæma mynd af fjölda óseldra íbúða á hverjum tíma. Niðurstöðurnar gefa engu að síður góða vísbendingu um stöðuna á markaðnum og þróun íbúðasölu.
Í hverju verkefni er að minnsta kosti ein íbúð enn í fyrstu sölu. Framtíðaráfangar sem ekki eru komnir inn í talninguna eru ekki meðtaldir. Mislangt er síðan verkefnin voru tilbúin til sölu og voru fyrstu íbúðir seldar í sumum þeirra fyrir um tveimur árum. Misjafnt er eftir verkefnum hvort hægt hefur verið á framkvæmdum innanhúss og hversu langt frágangur íbúða er kominn.

© Sigurður Bogi Sævarsson
Ódýrari eignir eftirsóttar
Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala og fasteignasali hjá Aldir fasteignasölu, segir efnahagsástandið vissulega eiga stóran þátt í stöðunni en fleira komi til. Þannig sé töluverður munur á því hversu vel gangi að selja nýjar íbúðir eftir verði, staðsetningu og gerð þeirra.
„Það er mjög góður gangur í þessum ódýrari eignum sem fyrstu kaupendur eru að kaupa,“ segir hún. Eftirspurn eftir slíkum eignum sé mikil og sérstaklega mikil eftir hagkvæmum íbúðum sem uppfylla skilyrði fyrir hlutdeildarlánum. „Það þarf klárlega að byggja meira af slíkum íbúðum og um leið þarf að hlusta betur á það sem markaðurinn er að biðja um.“
Heimild: Vb.is
Efni: Þúsundir nýrra íbúða óseldar











