Home Fréttir Í fréttum Reikna með 50 milljörðum en kostnaðarmat vantar

Reikna með 50 milljörðum en kostnaðarmat vantar

124
0
Reikna með 50 milljörðum en kostnaðarmat vantar
Undirbúningur Betri samgangna vegna Keldnalands hófst haustið 2021. mbl.is/Árni Sæberg

Reikna með 50 milljörðum en kostnaðarmat vantar

Mat á kostnaði við að koma lóðum í Keldnalandi í söluhæft ástand liggur ekki fyrir og ekki hefur verið ákveðið hver beri þann kostnað. Í fjárstreymisáætlun uppfærðs samgöngusáttmála er gert ráð fyrir 50 milljarða króna tekjum af sölu byggingarréttar á svæðinu til að fjármagna verkefni sáttmálans.

Þetta kemur fram í svari Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um skuldbindingar Betri samgangna. Svarið byggist á upplýsingum sem aflað var hjá félaginu.

Þar segir að Betri samgöngur ohf. hafi ekki skuldbundið sig til framkvæmda á Keldnalandi umfram fyrirhugaðar fjárfestingar í borgarlínu um landið. Þær séu hluti af framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans.

Daði Már Kristó­fers­son, fjár­mála- og efna­hags­ráðherra. mbl.is/Eyþór

Deiliskipulagsgerð ekki formlega hafin

Undirbúningur Betri samgangna vegna Keldnalands hófst haustið 2021. Samkeppni félagsins og Reykjavíkurborgar um þróunaráætlun svæðisins lauk haustið 2023. Vinnslutillaga að rammahluta aðalskipulags Reykjavíkur fyrir Keldnaland, ásamt drögum að þróunaráætlun og fylgigögnum, var kynnt sumarið 2025.

Nú er unnið að endanlegri tillögu að rammahluta aðalskipulags samhliða undirbúningi fyrstu deiliskipulagsáætlana. Einnig er verið að undirbúa tímasettar áætlanir um uppbyggingu grunninnviða.

Formleg tillaga að skipulagi Keldnalands í heild hefur hins vegar ekki verið kynnt og tekin til meðferðar og deiliskipulagsgerð er ekki formlega hafin. Skipulagningu og uppbyggingu verður skipt í minni áfanga, enda segir í svarinu að svo stórt og fjölmennt hverfi verði í uppbyggingu langt fram á næsta áratug.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Karítas

Gert ráð fyrir 5.800 íbúðum

Í vinnslutillögunni og drögum að þróunaráætlun er gert ráð fyrir að 5.800 íbúðir geti risið í Keldnalandi. Sú tala byggist á einfaldri nálgun þar sem meðalstærð íbúða er áætluð 100 brúttófermetrar. Jafnframt er gert ráð fyrir atvinnuhúsnæði þar sem 5.500 til 7.500 manns geti sótt vinnu.

Byggingarmagn, stærð íbúða og endanlegur fjöldi þeirra liggi ekki fyrir fyrr en að einhverjum árum liðnum, þegar búið verði að staðfesta deiliskipulagsáætlanir fyrir allt svæðið.

Í svarinu er sett fram reiknidæmi um tekjur af sölu byggingarréttar. Þar er miðað við að byggingarréttur atvinnuhúsnæðis skili 15% af áætluðum 50 milljarða króna tekjum, íbúðarhúsnæði 85% og íbúðirnar verði 5.800. Þetta er í svarinu sagt jafngilda um 7,5 milljónum króna á íbúð eða 75 þúsund krónum á fermetra.

Til samanburðar segir að miðað við útboð Garðabæjar og Kópavogs á byggingarrétti íbúða á deiliskipulögðum lóðum síðustu misseri megi ætla að greiddar hafi verið 120 til 140 þúsund krónur á fermetra. Það jafngildi 12 til 14 milljónum króna fyrir hverja 100 fermetra íbúð.

Semja á um uppbyggingu innviða

Gert er ráð fyrir að samið verði við Reykjavíkurborg og veitufyrirtæki um uppbyggingu sameiginlegra innviða, svo sem gatna og veitukerfa, til að lóðir verði byggingarhæfar.

Í þeim samningum verði meðal annars leitast við að tryggja að kostnaður við innviðina skerði ekki þann ábata sem sala byggingarréttar á að skila til verkefna samgöngusáttmálans.

Fjölgun eða fækkun íbúða geti einnig haft áhrif á ábatann af sölu byggingarréttar. Það eigi við ef heildarflatarmál íbúðarhúsnæðis eykst eða minnkar að sama skapi og verðmæti byggingarréttar á fermetra helst óbreytt.

Verði útlit fyrir að tekjur af Keldnalandi verði minni en áætlað er í uppfærðum samgöngusáttmála geti Betri samgöngur brugðist við í samvinnu við eigendur félagsins. Þar er meðal annars nefnt að uppfæra tíma- og framkvæmdaáætlanir verkefna sáttmálans eða nýta aðrar fjármögnunarleiðir.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: „Keldnaland býður upp á ný tækifæri“

Efni: Reikna með 50 milljörðum en kostnaðarmat vantar