Home Fréttir Í fréttum Á lokametrunum að klára bílastæði og göngustíga við Baug Bjólfs

Á lokametrunum að klára bílastæði og göngustíga við Baug Bjólfs

83
0
Á lokametrunum að klára bílastæði og göngustíga við Baug Bjólfs
Bílastæðið orðið slétt og flott og stígurinn upp og niður að pallinum sjálfum kominn í gott horf. Mynd: Helgi Sveinn Heimisson

Á lokametrunum að klára bílastæði og göngustíga við Baug Bjólfs

Þó engir séu fólksfjöldamælarnir til staðar við nýjasta aðdráttarafl Austurlands, sem er útsýnispallurinn Baugur Bjólfs hátt yfir Seyðisfirði, leikur enginn vafi á miklu aðdráttarafli þess staðar. Þar verið fjöldi fólks nánast daglega í allt sumar. Nú er verið að vinna lokafrágang á bílstæði og göngustíg upp að útsýnispallinum

Mikill fjöldi fólks hefur lagt leið sína upp að pallinum nánast í allt sumar eftir að færð leyfði en það var einmitt mikil umferð auk miður góðs veðurfars sem varð þess valdandi að hlé var sett á lokafrágang bílastæðis og göngustígs upp að Baugnum fyrr í sumar.

Fyrir ókunnuga þurfa flestir að leggja bílum sínum spottakorn fyrir neðan pallinn og ganga síðasta spölinn svo mikið ríður á að sú aðstaða sé eins góð og mögulegt er. Samkvæmt upplýsingum frá Héraðsverki á svæðinu mun takast að óbreyttu að ljúka frágangi öllum og snyrtingu á bílastæði og göngustígnum áður en veturinn fer að gera alvarlega vart við sig.

Heimild: Austurfrett.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Baugur Bjólfs tekur á sig mynd en vegagerð bíður betri tíma

Efni: Á lokametrunum að klára bílastæði og göngustíga við Baug Bjólfs