
Herkastalinn verði stækkaður
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur tekur jákvætt í tillöguna en segir jafnframt að ýmsu þurfi að breyta áður en hún geti orðið að veruleika.
Á fundi skipulagsfulltrúa var lögð fram fyrirspurn Lognfossa ehf. um hvort heimilt yrði að reisa nýtt stigahús með lyftu við bakhlið Kirkjustrætis 2, með nýjum aðalinngangi frá Tjarnargötu, í því skyni að tryggja fullnægjandi aðgengi að öllum hæðum hússins.
Með erindinu fylgdu teikningar sem sýna frumdrög að hönnun.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Hótelíbúðir í Herkastalann
Efni: Herkastalinn verði stækkaður











