
Alvotech og Veritas hætta við Hólmsheiði
Tvö af þeim fimm fyrirtækjum sem höfðu fengið lóðavilyrði fyrir lóð á Hólmsheiði fyrir tveimur árum hafa fallið frá uppbyggingu þar, en þrjú fyrirtæki stefna á að hefja uppbyggingu fljótlega eftir að lóðirnar verða byggingarhæfar á næsta ári.
Fyrirtækin tvö sem hafa hætt við uppbygginguna eru Alvotech og Veritas, en Alvotech ætlaði að reisa pökkunarmiðstöð og kæligeymslur fyrir líftæknilyfjaframleiðslu. Veritas ætlaði að reisa vöruhús fyrir heilbrigðisstarfsemi. Samþykkt byggingarmagn á lóðinni sem Veritas hafði fengið vilyrði fyrir er um 18 þúsund fermetrar en í tilfelli Alvotech rúmlega 20 þúsund fermetrar.
Hin fyrirtækin þrjú sem um ræðir eru Ölgerðin, Parlogis og Safari hjól. Afturköllun Alvotech og Veritas var tekin fyrir og samþykkt á fundi borgarráðs í september.
Ölgerðin hyggst reisa vöru- og dreifingarmiðstöð auk vatnsátöppunarverksmiðju. Parlogis ætlar að reisa hátæknivætt vöruhús á sinni lóð fyrir lyfja- og heilbrigðisvörur og Safari stefnir á að reisa nýjar höfuðstöðvar, en fyrirtækið rekur fjórhjóla- og torfærubílaferðir í nágrenni Reykjavíkur.

Tilvísun í Völuspá
Svæðið sem um ræðir er nýtt athafnasvæði innan borgarmarka Reykjavíkur og nær frá hesta- og tómstundabúskaparsvæðinu í Almannadal og til austurs ofan við Suðurlandsveg. Á svæðinu eru sex lóðir og hafði verið veitt lóðavilyrði fyrir fimm þeirra sem fyrr segir. Lengra til austurs, alla leið að Nesjavallaleið og upp að fangelsinu á Hólmsheiði og tengivirkinu á Hólmsheiði, er svo gert ráð fyrir enn fleiri lóðum síðar meir. Eru þessar fyrstu sex lóðir meðal stærstu lóðanna á heildarsvæðinu, en nær Nesjavallaleið og fangelsinu eru fleiri en minni lóðir miðað við núverandi skipulag.
Athygli vekur að í deiliskipulagstillögum hafa götur í hverfinu fengið nöfn sem vísa til dverga í Eddukvæðum Völuspár. Þannig eru á uppdráttum götunöfnin Gandálfsmörk, Durinsmörk, Fundinsmörk og Móðsoginsmörk, en fyrstu þrjú nöfnin er einnig að finna í bókmenntaverkunum Hobbitanum og Hringadróttinssögu eftir J. R. R. Tolkien.
Lóðin sem Ölgerðin fékk vilyrði fyrir er stærsta einstaka lóðin, samtals 45.614 fermetrar með byggingarmagn upp á 31.930 fermetra. Er heimiluð hámarkshæð hússins 25 metrar eða 7 hæðir.
Lóð Parlogis er aðeins minni, eða 33.166 fermetrar með 13.266 fermetra byggingarmagn. Lóð Safari er minnst, eða 13.105 fermetrar og gert er ráð fyrir 3.932 fermetra byggingarmagni. Á báðum lóðunum er gert ráð fyrir þriggja hæða húsum með 14,5 metra hámarkshæð.

3,5 milljarða gjöld
Heildarbyggingarréttargjöld og gatnagerðargjöld vegna lóðanna þriggja eru um 3,5 milljarðar, en samkvæmt svari Reykjavíkurborgar hafa fyrirtækin þrjú þegar greitt 10% af þeirri upphæð, eða um 350 milljónir. Ef Veritas og Alvotech hefðu haldið sig við fyrri áform hefði það þýtt aukalega 2,7 milljarða til borgarinnar í formi gjalda. Þá eru gjöld fyrir aðra óúthlutaða lóð, sem er stærsta lóðin auk þeirrar sem Ölgerðin fékk, um 1,9 milljarðar.
Líkt og Morgunblaðið fjallaði um í síðasta mánuði hefur Ölgerðin auglýst útboð vegna hönnunar og byggingar nýja vöruhússins. Er uppbyggingin stærsta fjárfesting fyrirtækisins og er gert ráð fyrir að starfsemi þar hefjist eftir um þrjú ár. Pláss verður fyrir allt að 29 þúsund vörubretti í vöruhúsinu. Drykkjarvöruframleiðsla Ölgerðarinnar verður hins vegar áfram í núverandi höfuðstöðvum á Grjóthálsi.

Samkvæmt nýju árshlutauppgjöri félagsins er gert ráð fyrir að jarðvinna hefjist strax á nýju ári og húsbygging í byrjun annars ársfjórðungs. Á framkvæmdum að ljúka í lok árs 2028 og þá hefjast prófanir áður en eiginleg starfsemi hefst um mitt ár 2029.
Lóðavilyrði þeirra þriggja lóða sem eru nú til staðar gilda til september 2027. Gert er ráð fyrir að úthluta lóðunum formlega næsta vor eða sumar og að uppbygging geti hafist í kjölfarið.
mbl.is óskaði svara frá borginni um áætlaðan kostnað borgarinnar við gatnagerð og aðra uppbyggingu á svæðinu, en í svari borgarinnar kom fram að sá kostnaður liggi ekki fyrir á þessu stigi. Hins vegar er tekið fram að málið sé unnið í samvinnu við Veitur og að kostnaðaráætlun vegna verksins muni liggja fyrir á næstu vikum. Verður gatnagerð í kjölfarið boðin út.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 28.09.2026 Vöruhús Beru hf á Hólmsheiði – Alútboð
Efni: Alvotech og Veritas hætta við Hólmsheiði











