
Öll tilboð yfir áætlun
Verktakafyrirtækið Eykt ehf. skilaði inn lægsta tilboðinu í innanhússfrágang nýs rannsóknarhúss Nýja Landspítalans við Hringbraut. Húsið hefur þegar verið steypt en lokafrágangur stendur yfir á útveggjum og þaki.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá opinberu hlutafélagi Nýja Landspítalans (NLSH ohf.). Tilboð Eyktar hljóðaði upp á 10.254.581.446 krónur og var rúmum 70 milljónum lægra en tilboð ÞG verktaka ehf., sem var næstlægst. Einnig buðu Ístak hf. og Þarfaþing hf. í verkið. Kostnaðaráætlun NLSH ofh. hljóðaði upp á 9.023 milljónir án virðisaukaskatts.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Uppsteypa á nýju rannsóknarhúsi Landspítalans við Hringbraut að hefjast
Efni: Öll tilboð yfir áætlun











