
Stúka með félagsheimili senn tilbúin
Framkvæmdir við byggingu áhorfendastúku við KA-völlinn á Brekkunni á Akureyri eru langt komnar. Aðstaða þessi verður tekin í notkun næsta sumar og vænst er að hún muni breyta miklu í starfi íþróttafélagsins.
„Við KA-fólk hlökkum mikið til að fá þetta frábæra mannvirki í notkun,“ segir Sævar Pétursson framkvæmdastjóri félagsins í samtali við Morgunblaðið.
Útbúinn hefur verið nýr knattspyrnuvöllur á KA-svæðinu og við hann stendur stúkan nýja, með 1.000 sætum. Möguleiki er þá á að taka við 200 manns á svæðið í viðbót. Lyftingadeild KA fær sömuleiðis þarna aðstöðu, en hún hefur hingað til verið annars staðar í bænum. Í mannvirki þessu verður þá salur fyrir júdódeild KA, en einna mest munar um átta nýja búningsklefa.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Framkvæmdir hefjast senn við félagsaðstöðu og stúku á KA-svæði
Efni: Stúka með félagsheimili senn tilbúin











