Nýtt gámasvæði rís fyrir 400 milljónir
Faxaflóahafnir hafa varið um 400 milljónum króna í uppbyggingu nýs gámasvæðis á Grundartanga.
Faxaflóahafnir hafa varið um 400 milljónum króna í uppbyggingu nýs gámasvæðis á Grundartanga. Framkvæmdum var nýlega lokið en markmiðið var að styrkja innviði hafnarinnar og bæta aðstöðu fyrir gámaflutninga og þjónustu við fyrirtæki.
Aðalverktaki verkefnisins var Þróttur ehf. og nam samningskostnaður við verkið um 360 milljónum króna án virðisaukaskatts.
Faxaflóahafnir segja í samtali við Viðskiptablaðið að búið sé að malbika svæðið og koma fyrir nýju fráveitukerfi með niðurföllum, regnvatnslögnum og brunnum sem tengjast núverandi lagnakerfi.
Samhliða framkvæmdunum var lýsing á svæðinu endurnýjuð. Eldri ljósamöstur og undirstöður voru fjarlægð og ný ljósamöstur og ljós sett upp ásamt rafbúnaði. Einnig voru lagðar lagnir fyrir lýsingu og eftirlitsbúnað.
Grundartangi er eitt stærsta iðnaðar- og hafnarsvæði landsins og Grundartangahöfn næstumfangsmesta höfn Faxaflóahafna. Félagið rekur höfnina og annast uppbyggingu hafnarinnviða og athafna- og iðnaðarlóða á svæðinu.
Heimild: Vb.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Tvö stór verkefni áformuð á Grundartanga
Efni: Nýtt gámasvæði rís fyrir 400 milljónir












