Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

Framkvæmdir við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

130
0
Framkvæmdir við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands
Mynd: NLSH.is

Framkvæmdir við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

Framkvæmdir við nýtt hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands hafa haldið áfram af krafti á síðustu vikum og er ytra byrði byggingarinnar nú farið að taka á sig sífellt skýrari mynd.

Lokið hefur verið við glerjun austurhliðar hússins og þar er klæðning komin langt á veg. Sambærileg staða er á suðurhliðinni þar sem bæði glerjun og klæðning eru vel á veg komin.

Samhliða því hefur hafist uppsetning á listum/prófílum sem ramma inn einstaka byggingarhluta og brjóta upp ásýnd hússins, sem gefur því meira endanlegt útlit. Á efstu hæð byggingarinnar er uppsetning samlokueininga að mestu lokið og hefur vinna nú færst yfir í frágang einstakra byggingarhluta.

Þar á meðal er hafin uppsetning flasninga og unnið er við lokafrágang útveggja. Á fjórðu hæð er unnið að pappalögn þaks, sem markar mikilvægan áfanga í undirbúningi fyrir áframhaldandi yfirborðsfrágang og vatnsheldni hússins.

Með þessum verkþáttum hefur byggingin tekið miklum breytingum á undanförnum mánuðum og sést nú betur hvernig hið nýja hús Heilbrigðisvísindasviðs mun móta aðstöðu fyrir kennslu, rannsóknir og samstarf innan heilbrigðisgreina.

„Framkvæmdin hefur miðað mjög vel áfram á síðustu vikum og sífellt betur sést hvernig byggingin mun líta út þegar henni verður lokið. Á næstu vikum verður áfram lögð áhersla á frágang útveggja og glerveggjakerfa,“ segir Jóhann Gunnar Ragnarsson, verkefnastjóri hjá NLSH.

Heimild: NLSH.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Glerjun hafin á öllum hliðum Húss heilbrigðisvísindasviðs HÍ

Efni: Framkvæmdir við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands