Home Fréttir Í fréttum Í fyrsta sinn sem reynir á varnargarðana

Í fyrsta sinn sem reynir á varnargarðana

77
0
Í fyrsta sinn sem reynir á varnargarðana
Aurskriðan sem féll á laugardaginn hafnaði á varnargörðunum. Ljósmynd/Ísafjarðarbær

Í fyrsta sinn sem reynir á varnargarðana

Aurskriða sem rann niður Eyrarfjall á Ísafirði á laugardaginn hafnaði á varnargörðum neðan Gleiðarhjalla, sem reistir voru fyrir um áratugi síðan til að varna gegn grjóthruni, aurskriðum og snjóflóðum.

Gylfi Ólafsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar sagði í samtali við mbl.is að þetta væri, að hans bestu vitund, í fyrsta sinn sem reynir á varnargarðana.

Gylfi Ólafsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. mbl.is/Sigurður Bogi

„Ég held að þetta sé í fyrsta sinn“

„Garðurinn er eitthvað um tíu metra hár og þessi skriða nær í rauninni ekki upp á vegginn sjálfan en án hans hefði þetta getað lekið inn í einhver hús,“ segir hann.

„Ég held að þetta sé í fyrsta sinn en svo var náttúrulega stóra skriðan sem féll hérna fyrir tveimur árum en það var utan varnargarðanna,“ sagði Gylfi að lokum.

Tveggja ára gömul mynd af skriðunni sem féll fyrir tveimur árum, fram hjá varnargörðum. Ljósmynd/Veðurstofa Íslands

Jarðýtan bjargaði deginum

Halldór Sveinbjörnsson, fréttaritari mbl.is á Ísafirði, vakti athygli mbl.is á því að á laugardaginn hafi reynt á garðana og rakti sögu gilsins sem skriðan féll niður.

Sagði hann að fyrir tíma garðanna hefði stórt grjót farið niður eftir fjallinu og skilið eftir sig farveginn sem aurskriðan fór niður á laugardaginn.

Þá sagði hann grjótið hafa stefnt í átt að húsi nokkru en að maður á jarðýtu hefði rétt náð að setja eina tönn jarðýtunnar í grjótið svo það breytti um stefnu og lenti frekar á bílskúr, sem stóð við hlið hússins, og hafnaði að lokum úti í sjó.

Framkvæmdir hafa staðið yfir í dag við að fjarlægja eftirstöðvar skriðunnar. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 24.5.2016 Snjóflóðavarnir á Ísafirði-Uppsetning stoðvirkja í Kubba

Efni: Í fyrsta sinn sem reynir á varnargarðana