Home Fréttir Í fréttum Landsvirkjun gerð skaðabótaskyld

Landsvirkjun gerð skaðabótaskyld

130
0
Landsvirkjun gerð skaðabótaskyld
Verkefnið sem boðið var út tók til þjónustu við snjóhreinsun og umhirðu vega og svæða á Þjórsársvæði, auk annarrar tilgreindrar vinnu. mbl.is/Sigurður Bogi

Landsvirkjun gerð skaðabótaskyld

Kærunefnd útboðsmála hefur úrskurðað Landsvirkjun skaðabótaskylda gagnvart verktakafyrirtækinu Þjótanda ehf. á Hellu, sökum þess að ekki var gengið að tilboði fyrirtækisins í þjónustu við snjóhreinsun og umhirðu vega og svæða á Þjórsársvæði, auk annarrar vinnu sem nánar var tiltekin í útboðsgögnum.

Ástæða þessa er sú að Landsvirkjun samdi við fyrirtækið Stórverk ehf. um þjónustuna, enda þótt það fyrirtæki hefði ekki yfir að búa þeim lágmarkstækjakosti sem krafa var gerð um í útboðinu. Var Landsvirkjun gert að greiða Þjótanda málskostnað upp á 1,75 milljónir króna.

Heimild: Mbl.is

Efni: Landsvirkjun gerð skaðabótaskyld