Home Fréttir Í fréttum 30 milljarða velta

30 milljarða velta

442
0
30 milljarða velta
Pétur Guðmundsson er eigandi félagsins. Ljósmynd: Kristinn Ingvarsson

30 milljarða velta

Móðurfélag Eyktar, Íþöku, Steypustöðvarinnar og fleiri félaga hefur hagnast um 11 milljarða á fjórum árum.

Árið áður nam hagnaðurinn 2.238 milljónum en samanlagður hagnaður áranna 2022-2025 nemur tæplega 11 milljörðum króna. Samstæðan velti 29.621 milljón í fyrra, sem er aukning um tæp 10% mili ára. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði nam 6.201 milljón.

Í ársreikningi segir að velta steypuhluta samstæðunnar hafi dregist nokkuð saman að teknu tilliti til verðlagsþróunar á árinu vegna minni umsvifa verklegra framkvæmda í landinu. Rekstur fasteignahluta samstæðunnar gekk þó vel en nýting fasteigna hélst góð milli ára, sem skilaði jákvæðri rekstrarniðurstöðu. Á árinu hélt sala íbúðarhluta samstæðunnar áfram með góðri sölu þó hægt hafi á sölu undir lok árs. Þá jókst velta byggingarhluta samstæðunnar milli ára en meðal stærstu verkefna ársins voru meðal annars uppsteypa á rannsóknahúsi nýjan Landspítala og bygging baðlóns í Hveragerði.

Sjáskot af Vb.is

Eignir samstæðunnar voru bókfærðar á 86,6 milljarða króna um áramótin og eigið fé nam 25 milljörðum. Stjórn leggur til að 50 milljónir verði greiddar í arð en allt hlutafé er í eigu Péturs Guðmundssonar.

Heimild: Vb.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Yfir 3 milljarða hagnaður á ný

Efni: 30 milljarða velta