Home Fréttir Í fréttum Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum

Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum

52
0
Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum
Maðurinn er samt ekki í lífshættu. Vísir/Vilhelm

Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum

Starfsmaður á byggingarsvæði í Neskaupstað slasaðist alvarlega á þriðjudag þegar hann féll af svölum. Hann er ekki talinn í lífshættu.

Rúv greindi fyrst frá en Ari Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri Nestaks, segir við Vísi að starfmaðurinn hafi fallið við vinnu á þriðjudagsmorgni og slasast alvarlega.

Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, segir í samtali við Vísi að slysið hafi orðið á byggingarsvæði þar sem maðurinn hafi fallið af svölum um eina og hálfa hæð.

Kristján segir að starfsmaðurinn sé talinn talsvert slasaður, hafi meðal annars hlotið beinbrot, en sé ekki í lífshættu.

Á annan tug starfsmanna vinna hjá Nestak.

Slysið er nú til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu, að sögn Kristjáns.

Heimild: Visir.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Ung kona flutt til Noregs eftir vinnuslys í Borgarfirði

Efni: Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum