Home Fréttir Í fréttum Ung kona flutt til Noregs eftir vinnuslys í Borgarfirði

Ung kona flutt til Noregs eftir vinnuslys í Borgarfirði

98
0
Ung kona flutt til Noregs eftir vinnuslys í Borgarfirði
Konan slasaðist þegar hún vann við tengivirki í Borgarfirði. Mynd úr safni. RÚV – Elsa María Guðlaugs Drífudóttir

Ung kona flutt til Noregs eftir vinnuslys í Borgarfirði

Ung kona sem starfar fyrir Landsnet og varð fyrir rafstraumi þegar hún vann við tengivirki á mánudaginn var flutt beint til Noregs til þess að gangast undir aðgerð. Ekki er vitað meira um líðan hennar að svo stöddu.

Starfsmaður Landsnets sem varð fyrir rafstraumi í vinnuslysi í Borgarfirði var flutt til Noregs í aðgerð eftir slysið. Starfsmaðurinn er kona á þrítugsaldri. Þetta herma heimildir Vísis og DV. Slysið átti sér stað á mánudag við tengivirki í Borgarfirði.

Ekki fást upplýsingar um líðan konunnar.

Andri Ólafsson, samskiptastjóri Landspítalans gat ekki staðfest að konan hefði verið flutt út en segir að sérsamningur sé á milli Landspítalans og Haukeland háskólasjúkrahússins í Bergen í Noregi til meðferðar á brunasárum.

Jónas Hallgrímur Ottósson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, segir að lögreglurannsókn sé hafin á atvikinu. Þá sé Vinnueftirlitið einnig með slysið til rannsóknar.

Jónas segir að lögregla rannsaki tildrög og orsakir slyssins en ekki sé hægt að veita upplýsingar um það á þessum tímapunkti. Það eina sem lögregla geti staðfest varðandi slysið sé að viðkomandi sem varð fyrir rafstraumi hafi verið starfsmaður Landsnets og að fleiri starfsmenn hafi verið á svæðinu þegar slysið varð.

Valgeir Örn Ragnarsson, forstöðumaður samskipta hjá Landsneti, segir að ekki verði veittar upplýsingar um líðan starfsmannsins.

Ákveðið var í gær að fresta opnum haustfundi sem halda átti á morgun, 1. október, í Vör.

Í tilkynningunni segir að hjá Landsneti starfi samheldinn hópur fólks sem láti sig hvert annað varða. Hugur starfsfólks sé hjá samstarfsfélaga sínum sem slasaðist á mánudaginn.

Heimild: Ruv.is

Efni: Ung kona flutt til Noregs eftir vinnuslys í Borgarfirði