Home Fréttir Í fréttum „Betur fór en á horfðist“ í vinnuslysinu

„Betur fór en á horfðist“ í vinnuslysinu

80
0
„Betur fór en á horfðist“ í vinnuslysinu
Maður að störfum í tengivirki. Myndin tengist atvikinu ekki. Ljósmynd/Aðsend

„Betur fór en á horfðist“ í vinnuslysinu

Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, segir að útlit sé fyrir að betur hafi farið en á horfðist þegar starfsmaður Landsnets fékk „rafmagn í gegnum sig“ við störf í tengivirki fyrir hönd fyrirtækisins fyrr í dag.

„Þetta fór betur en á horfðist. Hann var með meðvitund þegar hann var fluttur með þyrlu á sjúkrahús,“ segir Ásmundur.

Hann veit ekki til þess að maðurinn hafi fallið úr hæð en segir manninn þó „eitthvað slasaðan.“

Rafmangslaust er í Borgarfirði og á Mýrum eftir atvikið.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Maður fluttur með þyrlu á Landspítala eftir slys í tengivirki

Efni: „Betur fór en á horfðist“ í vinnuslysinu