Home Fréttir Í fréttum Maður fluttur með þyrlu á Landspítala eftir slys í tengivirki

Maður fluttur með þyrlu á Landspítala eftir slys í tengivirki

117
0
Maður fluttur með þyrlu á Landspítala eftir slys í tengivirki
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna vinnuslys við tengivirki í Borgarfirði. RÚV – Bragi Valgeirsson

Maður fluttur með þyrlu á Landspítala eftir slys í tengivirki

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna manns sem slasaðist við tengivirki í Borgarfirði í dag. Maðurinn hefur verið fluttur á Landspítala til aðhlynningar. Rafmagnslaust er allt frá Borgarnesi að Húsafelli.

Maður slasaðist í vinnuslysi við tengivirki í Borgarfirði í dag.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og flutti manninn til aðhlynningar á Landspítalanum. Ekki fást upplýsingar um líðan hans.

Rafmagnslaust hefur verið í Borgarfirði eftir útleiðslu í tengivirki við Vatnshamra fyrr í dag.

Rafmagnslaust er í Borgarnesi, Skorradal og allt upp í Húsafell eftir að spennar í tengivirkinu Vatnshömrum leystu út.

Tölvu- og símkerfi Heilsugæslunnar í Borgarnesi liggja niðri vegna rafmagnsleysisins.

Í tilkynningu frá Landsneti segir að unnið sé að því að koma rafmagni aftur á.

Íbúar eru beðnir að fylgjast með tilkynningum á vefsíðu Landsnets.

Heimild: Ruv.is

Efni: Maður fluttur með þyrlu á Landspítala eftir slys í tengivirki