Rúmur milljarður í LED-væðingu
Stutt er í að uppsetning nýrra LED-lampa í ljósastaurum Reykjavíkurborgar ljúki. Áætlaður kostnaður við verkefnið á þessu ári nemur 250 milljónum króna.
Áætla má að heildarkostnaðurinn vegna verkefnisins undanfarin ár sé orðinn vel yfir einum milljarði króna, að sögn Viðars Einarssonar, einingarstjóra tækniteymis Reykjavíkurborgar.
Alls er um 34 þúsund götuljósalampa að ræða en búið er endurnýja megnið af ljósunum.
Á þessu ári verða endurnýjaðir um 4.210 götulampar. Undanfarið hafa þeir meðal annars verið endurnýjaðir í Árbænum, Þingholtunum, Bryggjuhverfinu og á Kjalarnesi.
Eftir að því verkefni lýkur verður búið að setja upp um 90% lampanna í borginni. Þá verða einungis Laugardalurinn og Hlíðarnar eftir, segir Viðar.

Átti að ljúka fyrir tveimur árum
Uppsetning LED-ljósanna hófst árið 2020. Upphaflega átti verkefninu að ljúka árið 2024 en eftir að borgin ákvað að stöðva fjárveitingu í verkefnið var gert hlé á því. Á þessu ári fékkst fjármagn aftur til að klára það í tengslum við ljósvistastefnu Reykjavíkurborgar. Sú stefna snýst um góða og rétta lýsingu, að sögn Viðars.
Orkusparnaður og betri stjórn
„Bæði er þetta mikill orkusparnaður sem næst í þessu og í rauninni getum við stýrt betur birtumagninu, bæði dempað ljósið eða aukið ljósmagnið þannig að við höfum mun betri stjórn á lampanum sjálfum,” greinir hann frá um kostina við nýju LED-lampana.
„Við erum að auka lífsgæðin í borginni með því að lýsa upp á réttum stöðum.”
Heimild: Mbl.is
Efni: Rúmur milljarður í LED-væðingu












