Home Fréttir Í fréttum Eik kaupir fast­eign Kraft­véla á 1.4 milljarða

Eik kaupir fast­eign Kraft­véla á 1.4 milljarða

355
0
Eik kaupir fast­eign Kraft­véla á 1.4 milljarða
Ljósmynd: Aðsend mynd

Eik kaupir fast­eign Kraft­véla á 1.4 milljarða

Kraftvélar undirrituðu samhliða leigusamning við Eik.

Eik fasteignafélag gekk frá kaupum á Dalvegi 6-8 í Kópavogi af Bílaútleigunni ehf., dótturfélagi UK fjárfestinga, á dögunum. Kaupverðið nam 1.428 milljónum króna samkvæmt kaupsamningi.

Fasteignirnar hýsa starfsemi Kraftvéla sem selja vinnuvélar. Kraftvélar eru í 90% eigu UK fjárfestinga, sem á einnig Toyota á Íslandi, TK Bíla og Bílanaust.

Um er að ræða tvær fasteignir sem eru samtals 3.177 fermetrar að stærð. Fasteignamat eignanna nemur 906 milljónum króna og brunamótamat 1,5 milljörðum króna.

Kraftvélar undirrituðu leigusamning við Eik samhliða kaupsamningnum.

Samkvæmt nýrri stefnu Eikar um uppbyggingu eignasafns félagsins leggur fasteignafélagið nú áherslu á stórar eignir, öfluga leigutaka og langa leigusamninga.

Heimild: Vb.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Kaupa Há­degis­móa 8 af Brim­borg fyrir 2.6 milljarða

Efni: Eik kaupir fast­eign Kraft­véla á 1.4 milljarða