Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna
Alva fasteignir greiddi 850 milljónir fyrir Valhöll sem áður voru höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Kaupsamningur þess efnis var undirritaður í byrjun septembermánaðar.
Valhöll var auglýst til sölu í nóvember 2025 en húsið var byggt árið 1975 fyrir starfsemi Sjálfstæðisflokksins. Í fasteignaauglýsingunni stóð að um væri að ræða eitt af þekktari kennileitum Reykjavíkur. Byggingin var hönnuð af arkitektunum Halldóri H. Jónssyni og Garðari Halldórssyni.
Alva fasteignir, félag Skorra Rafns Rafnssonar, fékk staðfest kauptilboð og greiddi 850 milljónir króna fyrir húsið. Fasteignamatið var 839 milljónir en brunabótamatið 1,182 milljarðar króna. Þetta segir í kaupsamningi sem fréttastofa hefur undir höndum.
Með þessu fá Sjálfstæðismenn um 552 milljónir í vasann en 298 milljóna króna lán var áhvílandi á húsinu í byrjun árs. Lánið var tekið árið 2015 og var upp á 360 milljónir króna.
Enn á félagið eftir að greiða fimmtíu milljónir króna en það verður gert við undirritun afsals þann 27. nóvember 2026. Félagið tók þá lán upp á 640 milljónir króna til að greiða fyrir bygginguna en ætlar sér að greiða lánið með einni afborgun.
Í desember 2025 tók skipulagsfulltrúi Reykjavíkur fyrirspurn Alva fasteigna um Valhöll en félagið óskaði eftir afstöðu skipulagsfulltrúa til þess hvort mögulegt væri að fá leyfi til að breyta notkun hússins í gistiheimili eða hótel. Niðurstaðan var að hótelstarfsemi á lóðinni samræmdist aðalskipulagi en hins vegar þyrfti að breyta deiliskipulagi svo hægt væri að nýta bygginguna í hótelrekstur.
Sjálfstæðisflokkurinn flutti höfuðstöðvar sínar í Kringluna við söluna og eru því nágrannar tryggingafélagsins Sjóvá.
Heimild: Visir.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Alva fasteignir að ganga frá kaupum á Valhöll
Efni: Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna












