Home Fréttir Í fréttum Reykjavík býður út byggingarrétt fyrir allt að 16 íbúðir við Hraunberg 1

Reykjavík býður út byggingarrétt fyrir allt að 16 íbúðir við Hraunberg 1

143
0
Reykjavík býður út byggingarrétt fyrir allt að 16 íbúðir við Hraunberg 1
Mynd: mbl.is/Sigurður Bogi

Reykjavík býður út byggingarrétt fyrir allt að 16 íbúðir við Hraunberg 1

Reykjavíkurborg hyggst bjóða til sölu byggingarrétt á íbúðarhúsalóðinni við Hraunberg 1 í Breiðholti þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu á allt að 16 íbúðum ásamt þjónustu-, verslunar- eða samfélagsrými á jarðhæð.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum fimmtudaginn 17. september tillögu umhverfis- og skipulagssviðs um að byggingarrétturinn yrði boðinn út og jafnframt tillögu að úthlutunar- og útboðsskilmálum lóðarinnar.

Samkvæmt bókun meirihluta borgarráðs hefur uppbyggingin verið endurskoðuð með hliðsjón af samráði við íbúa og felld betur að nærumhverfinu. Byggingarmagn hefur verið minnkað frá fyrri heimildum og aukin áhersla lögð á grænt yfirbragð lóðarinnar, gæði íbúða og sameiginleg útisvæði.

Bílastæðahús undir sameiginlegum garði

Gert er ráð fyrir að bílastæði verði leyst innan byggingarreits í yfirbyggðu bílastæðahúsi. Ofan á bílastæðahúsinu á síðan að koma sameiginlegt garðrými fyrir íbúa.

Markmiðið er að stærri hluti yfirborðs lóðarinnar geti nýst undir græn svæði og dvalarrými í stað hefðbundinna bílastæða á yfirborði.

Uppbyggingin á rætur að rekja til breytinga á hverfisskipulagi Breiðholts vegna lóða við Austurberg og Hraunberg. Í þeirri vinnu hefur verið gert ráð fyrir tveimur íbúðakjörnum á svæðinu, annars vegar með 4–6 íbúðum og hins vegar með 12–16 íbúðum ásamt þjónustu-, verslunar- eða samfélagsrými.

Tillaga að breytingu á hverfisskipulaginu var upphaflega auglýst sumarið 2025 og bárust athugasemdir við hana. Tillagan var síðar endurskoðuð og samþykkt af umhverfis- og skipulagsráði árið 2026. Meðal breytinga var að draga úr byggingarmagni og útfæra nánar grænt yfirbragð og gæði fyrirhugaðrar byggðar.

Með samþykkt borgarráðs 17. september er nú komið að næsta skrefi, að bjóða byggingarréttinn við Hraunberg 1 til sölu.

Heimild: Reykjavíkurborg

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Reykjavík býður út byggingarrétt fyrir 40 íbúðir við Suðurhóla

Efni: Reykjavík býður út byggingarrétt fyrir allt að 16 íbúðir við Hraunberg 1