Home Fréttir Í fréttum Icelandair selur aðra fasteign á Ásbrú

Icelandair selur aðra fasteign á Ásbrú

85
0
Icelandair selur aðra fasteign á Ásbrú
Ljósmynd: Aðsend mynd

Icelandair selur aðra fasteign á Ásbrú

Icelandair hefur nú selt tvö fjölbýlishús á Ásbrú fyrir tæplega 1,4 milljarða króna síðastliðið ár.

Dótturfélag Icelandair, IGS fasteignir ehf., seldi í lok ágúst fjölbýlishús að Keilisbraut 748 á Ásbrú í Reykjanesbæ fyrir 650 milljónir króna.

Kaupandi er leigufélagið Icelandic Home ehf. sem keypti einnig fjölbýlishús að Keilisbrú 751 af IGS fasteignum í lok síðasta árs fyrir 720 milljónir króna. Icelandic Home á einnig nærliggjandi fasteignir að Keilisbraut 750 og 753.

Keilisbraut 748 skiptist í þrjár hæðir samtals 83 herbergi, á hverri hæð er eldhússaðstaða, þvottahús og setustofa. Eignin var auglýst til sölu í febrúar.

„Flest eru herbergin íbúðarherbergi með tveimur svefnherbergjum í hverju aðskildu rými ásamt baðherbergi og geymslur tvær. Möguleiki væri að útbúa tveggja herbergja íbúðir úr þessum rýmum,“ segir í fasteignaauglýsingunni.

Keilisbraut 748 var bókfærð á 152 milljónir króna í árslok 2025 í ársreikningi IGS fasteigna. Félagið á áfram fasteign að Suðurbraut 759 á Ásbrú.

IGS fasteignir eru í eigu Iceeigna, dótturfélags Icelandair, sem á fasteignir sem bókfærðar voru á 13 milljarða króna í lok síðasta árs. Verðmætasta eign félagsins eru nýjar höfuðstöðvar flugfélagsins að Flugvöllum 1 i Hafnarfirði sem var metin á 6,6 milljarða í lok síðasta árs.

Eignasafn Icelandic Home ehf. taldi um 440 útleigueiningar, sem flestar eru staðsettar á Ásbrú, fyrir ofangreind kaup á Keilisbraut 748 og 751. Viðskiptablaðið fjallaði í fyrra um áhuga félagsins að reisa nýtt 90-180 rýma hjúkrunarheimili miðsvæðis á Ásbrú.

Eignir Icelandic Home voru bókfærðar á 4,4 milljarða króna í árslok 2024 og eigið fé var um einn milljarður króna. Félagið hefur ekki birt ársreikning fyrir árið 2025.

Stærstu hluthafar Icelandic Home, samkvæmt síðasta ársreikningi, eru Vallarvinir ehf., félag Skúla Skúlasonar og Guðbjargar Astrid Skúladóttur, með 38,1% hlut og Global fjárfestingarfélag ehf., félag Theodórs Siemsen Sigurbergssonar, með 16,3% hlut.

Þá áttu félögin Gráklettur ehf., í eigu Vignis Óskarssonar, Glóra hf., í eigu Þorleifs Björnssonar, og Melás ehf., í eigu Karls Finnbogasonar, 15,2% hlut hvert.

Nálgast má myndir af fasteigninni hér.

Heimild: Vb.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Icelandair selur á Ás­brú fyrir 720 milljónir

Efni: Icelandair selur aðra fasteign á Ásbrú