ALL Verk fær endurbætur á rannsóknardeild HVEST fyrir 78.3 milljónir
ALL Verk ehf. hefur fengið endurbætur á rannsóknardeild Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða á Ísafirði fyrir rúmar 78,3 milljónir króna.
Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) tilkynnti 10. september að tilboð ALL Verk hefði verið tekið, enda metið hagstæðast samkvæmt valforsendum útboðsins.
Tilboð félagsins nam 78.271.257 krónum með virðisaukaskatti og var lægsta heildartilboðið sem barst.
Með töku tilboðsins er kominn á bindandi samningur milli aðila.
Rannsóknardeildin endurnýjuð
BYGGINGAR.IS greindi frá útboði framkvæmdarinnar í júní.
Verkið snýr að endurbótum á blóðrannsóknardeild Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða við fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði.
Framkvæmdin felur í sér endurnýjun rýma sem nú hýsa rannsóknarstofu, kæli, þurrlager og eldhúsaðstöðu.
Rífa á núverandi veggi, stiga og innréttingar, færa til veggi og reisa nýja. Þá verða rýmin endurinnréttuð samkvæmt hönnunarforskriftum og ráðist í nauðsynlegar endurbætur á brunavörnum.
Markmið framkvæmdarinnar er að endurnýja og bæta aðstöðu rannsóknardeildarinnar fyrir blóðrannsóknir.
Tilboð í verkið voru opnuð 13. ágúst en FSRE hefur nú lokið yfirferð tilboða og tekið tilboði ALL Verk.
Heimild: FSRE.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: All Verk ehf. lægst í endurbætur á rannsóknardeild HVEST á Ísafirði
Efni: ALL Verk fær endurbætur á rannsóknardeild HVEST fyrir 78.3 milljónir












