Enn eitt félag Musks metið á tugmilljarða dala
Þjóðarsjóðir Sameinuðu arabísku furstadæmanna leiddu nýja fjármögnunarlotu The Boring Company.
Enn eitt félagið sem stofnað var af Elon Musk, ríkasta manni heims, hefur náð tugmilljarða dala verðmati. The Boring Company lauk 3 milljarða dala fjármögnun þar sem félagið var matið á 23 milljarða dala.
Fjármögnunarlotan (Series D) var leidd af þjóðarsjóðum á vegum Sameinuðu arabísku furstadæmanna.
Virði Boring Company hefur margfaldast frá því að félagið lauk síðast fjármögnunarlotu árið 2022 en þá var það metið á 5,7 milljarða dala.
Musk, sem er forstjóri Tesla og SpaceX, stofnaði The Boring Company árið 2017 eftir að hafa orðið argur yfir umferðarteppum. Fyrirtækið vinnur að því að þróa og koma upp innviðum fyrir neðanjarðarsamgöngur.
„Að sigrast á umferðinni er hinn fullkomni lokabardagi. Jafnvel valdamesta fólk í heimi ræður ekki við umferðina,“ er haft eftir Musk í tilkynningu The Boring Company um fjármögnunina.
The Boring Company vinnur að því að byggja neðanjarðarsamgöngukerfi í miðborg Dubaí sem ber nafnið Dubai Loop. Fyrirtækið segir að fjárfestingin leiði af sér að samstarfið verði útvíkkað og nú sé áformuð uppbygging umfangsmikilla neðanjarðarinnviða víðs vegar um Sameinuðu arabísku furstadæmin, þar á meðal yfir 150 kílómetrar göng.
The Boring Company segir að á undanförnum tveimur árum hafi fyrirtækið vaxið úr því að reka eitt Loop-kerfi yfir í jarðgangagerð í mörgum borgum.
Heimild: Vb.is
Efni: Enn eitt félag Musks metið á tugmilljarða dala












