
Vinnumenn festa kaup á Flotun
Vinnumenn ehf. hafa gengið frá kaupum á rekstri, eignum, tækjum, lager, viðskiptavild og vörumerki Flotunar ehf.
Vinnumenn ehf. hafa gengið frá kaupum á rekstri, eignum, tækjum, lager, viðskiptavild og vörumerki Flotunar ehf. af stofnanda þess, Guðmundi Björnssyni. Í tilkynningu segir að nafn Flotunar verði áfram notað undir eignarhaldi Vinnumanna.
Fram kemur að starfsfólk Flotunar haldi áfram störfum og sameinist starfsliði Vinnumanna.
„Viðskiptavinir muni því áfram eiga samskipti við sama fólk og njóta sama handbragðs við vinnuna. Engar breytingar séu fyrirhugaðar á þjónustunni aðrar en þær að stærra fyrirtæki með meiri afkastagetu standi nú að baki henni,“ segir í tilkynningu.
Vinnumenn er sérhæft þjónustufyrirtæki á byggingarmarkaði sem starfar á landsvísu og sérhæfir sig í gólfhitafræsingu, steinsögun, slípun og flotun.
„Við ætlum ekki að breyta því sem hefur virkað, heldur byggja ofan á það.“
Flotun ehf., sem var stofnað um aldamótin, sérhæfir sig í lagningu flotefna og heildarlausnum í gólflögnum. Félagið hefur einnig haft með höndum innflutning og sölu á sérhæfðum vinnuvélum og tækjabúnaði fyrir iðnaðinn.

© Aðsend mynd
„Flotun er nafn sem menn í greininni þekkja og treysta. Við ætlum ekki að breyta því sem hefur virkað, heldur byggja ofan á það. Hópurinn heldur áfram, gæðin og áreiðanleikinn haldast og viðskiptavinir eiga að finna að þeir eru í sömu góðu höndum og áður,“ segir Eiríkur Atli Hlynsson, annar stofnenda Vinnumanna.
Með kaupunum stækka Vinnumenn starfsemi sína og bæta við sig innflutningi, sölu og leigu á sérhæfðum tækjabúnaði á borð við slípivélar og iðnaðarryksugur. Fyrirtækin munu í kjölfarið sameina krafta sína á markaði fyrir gólflagnir og gólfhitakerfi.
„Viðskiptin gera okkur kleift að taka að okkur stærri og fleiri verkefni. Með stærri starfsmannahópi mun afkastageta okkar aukast umtalsvert. Þá sjáum við einnig skýr sóknarfæri í að efla enn frekar sölu- og leiguhluta nýrrar samstæðu á tækjabúnaði,“ segir Magnús Guðbrandsson, annar stofnana Vinnumanna.
Heimild: Vb.is
Efni: Vinnumenn festa kaup á Flotun











